Jæja, þá eru nú hlutirnir aldeilis farnir að gerast! Til viðbótar við miðann til Köben og miðann heim erum við nú búnar að kaupa miða frá Aþenu til Perth í Ástralíu og frá Sydney til Honolulu á Hawaii Ég ætla ekki einu sinni að reyna að lýsa því hversu spenntar við erum orðnar! Við ætlum að fara til Ástralíu 17. ágúst svo að ég á eftir að halda upp á 24 ára afmælið einhversstaðar í landi kengúranna Þegar við vorum að kaupa miðann kom í ljós að við millilendum í Dubai og ekki var það nú til að skemma fyrir. Að vísu er bara 3 tíma stopp en samt......
Nú eru bara rétt rúmir 3 mánuðir þangað til ég hætti að vinna. Það er endalaust skrítið að hugsa um það, enda er ég búin að vinna þarna í rúm 5 ár! Árshátíð Kaupás er svo 8. mars. Það verður væntanlega eintóm gleði eins og alltaf
Annars er bara allt við það sama.... Keypti mér miða á Bítlatónleikana 22. mars og ætla að vera svo einstaklega almennileg að bjóða bróður mínum með....
Later....
Lag dagsins: Days go by (acoustic) með Dirty Vegas
Þá er ferðin okkar Diljár aldeilis að verða að veruleika! Við erum sem sagt búnar að kaupa flugmiðann til Danmerkur þann 30. maí næstkomandi Við stefnum svo á að vera u.þ.b. 2 og hálfan mánuð á flakki um Evrópu og færa okkur síðan til Ástralíu upp úr miðjum ágúst. Ég á sem sagt eftir að eyða 24. afmælisdeginum einhvers staðar í Ástralíu. Ekki er það nú slæmt Næstu 2 og hálfur mánuður fara síðan í að skoða Ástralíu og Nýja Sjáland. Eftir það gerum við ráð fyrir að fara til Hawaii og vera þar allavega viku/10 daga. Ætlum allavega að vera einhversstaðar í USA 2. nóvember en þá eru forsetakosningar. Sennilega aðeins meira um að vera en þegar kosið er um forseta á Íslandi Planið er svo að koma heim frá New York þann 17. desember (búin að kaupa þann miða líka ;P ).
Fyndið hvað þetta varð eitthvað miklu raunverulegra þegar við vorum búnar að kaupa fyrsta miðann. Þá fyrst gerði maður sér grein fyrir að þetta er í alvöru að fara að gerast Núna erum við líka ALVEG að missa vitið út af spenningi. Vinir okkar verða sennilega hættir að umgangast okkur u.þ.b. mánuði fyrir brottför
Annað sem er að valda spenningi hjá mér þessa dagana er nýja frændsystkinið sem von er á þann 10. mars Hefur ekki komið barn í þessa fjölskyldu í 7 ár! Og auðvitað ætlast ég til þess að ég verði uppáhaldsfrænkan
Svo var ég svo stálheppinn að fá gefins gjafakort í Borgarleikhúsið frá starfsmannafélagi Kaupáss, þannig að við Diljá ætlum að vera hriiikalega menningarlegar og fara að sjá Jesus Christ Superstar 29. febrúar. Diljá uppgötvaði sér til mikillar gleði að það er akkúrat daginn eftir tvítugs afmælið hennar þannig að hún getur keypt sér bjór í leikhúsinu. Það er svo sem í lagi svo fremi sem ég þarf ekki að draga hana hálfdauða upp af baðherbergisgólfinu og drösla henni heim
Later.....
Samtal dagsins: Ég (á barnum í Dóminíska): Sex on the beach, please! Barþjónninn: Why not do it here...?! Ég: *roðn* Excuse me!!! Barþjónninn: *glott* I love you..... Ég: Uuuuh... *roðn*........
Lag dagsins: Immigrant Song með Led Zeppelin (nýja hringingin á símanum mínum)
Jæja gott fólk, gleðileg jól og gleðilegt ár og allt það! 2 vikur frá síðasta bloggi og mikið vatn runnið til sjávar síðan þá. Við lentum á klakanum á föstudagsmorguninn og fyrsta verk okkar Hrafnhildar þegar við komum í bæinn var að bruna á McDonalds....(Don‘t judge, við vorum svangar!!)
Allavega, ferðin okkar til Dóminíska var alveg rosalega skemmtileg og vel heppnuð í alla staði, vona bara að ég hafi ekki verið Ólu og Adda til ama..... Reyndar fór eitthvað minni fyrir ‘‘working-the-tan-planinu“ okkar Hrafnhildar en til stóð þar sem við höfðum bara enga þolinmæði til að liggja á ströndinni allan daginn. Þar af leiðandi uppgötvuðum við, þegar það voru 3 dagar í heimferð, að við vorum bara alls ekkert brúnar! Þá var bara rokið í næstu búð og keypt taning oil, sem að hafði að vísu ekkert mikið að segja fyrir utan 3. Stigs bruna á nokkra staði......
Annars skemmtum við okkur alveg konunglega! Að vísu vorum við frekar lengi að venjast tímamismuninum sem þýddi það að við vorum yfirleitt orðnar syfjaðar kl 8 og sofnaðar milli 9 og 10! *roðn* Já ég veit, frekar sorglegt.... En hins vegar vorum við líka (allavega ég) yfirleitt byrjaðar að fá okkur í glas fyrir hádegi. Gæti hæglega vanist þessu letilífi þarna...
3. daginn okkar þarna uppgötvuðum við að það var Pizza Hut í litla mollinu rétt hjá hótelinu okkar. Eftir það var ekki aftur snúið. Soldið spes að sitja á Pizza Hut í hádeginu á aðfangadag... Og Jóladag... Og Gamlársdag... Og soldið oftar....
Á annan í jólum stóð til að fara í skoðunarferð á eyju þarna rétt fyrir utan. Úr því varð nú ekki af minni hálfu þar sem ég varð alveg fárveik nóttina áður! Veit ekki alveg hvort þetta var ælupest, matareitrun eða.. ehemm... sexonthebeach-eitrun.... Allavega þá lá ég ein heima allan daginn og horfði á sjónvarpið, frekar glatað. Ég hafði sem sagt tekið fullmikið á því í drykkjunni kvöldið áður og varð alveg suddalega drukkin. Allavega nógu drukkin til að fara og dansa merengue við gaurana í staffinu....
En talandi um gaurana í staffinu! Ég hefði hæglega getað komið heim með einn ef ekki tvo innfædda upp á arminn!!! Við sem sagt komumst að því að éf maður er lítil og ljóshærð þá fær maður heilmikla athygli út á það.... Og það var ekkert endilega góður hlutur!!Ég hafði til dæmis engan áhuga á því að fara í bæinn á kvöldin og dansa við gaurinn úr minjagripabúðinni, sem þurfti bráðnauðsynlega að kyssa mig og halda utan um mig ef ég kom inn í búðina hans! Eða “gaurinn-með-hárið“ úr entertainment-staffinu sem sagðist elska mig og þurfti líka alltaf að kyssa mig ef hann sá mig... Aðeins of mikið fyrir minn smekk takk fyrir!
2 dögum fyrir gamlárskvöld fórum við í Monster Truck Safari. Það er sem sagt skoðunarferð inn í landið á risastórum gömlum hermannatrukkum. Það var alveg hrikalega gaman í þeirri ferð og maður fékk aðeins aðra sýn á landið og fólkið í landinu. Það var stoppað á dóminískum sveitabæ, skóla, fengum að skoða dóminískt heimili, syntum í á og stoppuðum í rommbúð. Geggjuð ferð!!
Daginn fyrir gamlárs fórum við Hrafnhildur svo í Ocean World. Það er svona hálfgerður skemmtigarður rétt fyrir utan Puerto Plata. Þarna getur maður snorklað í risastóru fiskabúri, synt með höfrungum, hákörlum og gaddaskötum, skoðað regnskóga fugla og sæljón. Við sem sagt skráðum okkur í svona dolphin encounter, þar sem maður er ofan í lauginni með höfrungunum og fær að gefa þeim að borða og klappa þeim og faðma þá og svo eru teknar myndir af öllu saman sem maður getur keypt. Þetta var alveg rosalega skemmtilegt! (Þó að ég sé yfirleitt hrædd við dýr....) Þjálfarinn hefur sennilega séð taugaveiklunar svipinn á mér og heyrt nervous-hláturinn minn því hann var alltaf að láta annan höfrunginn stríða mér, til dæmis með því að skvetta á mig vatni í tíma og ótíma. Samt fyndið svona eftir á..... Svo heimtaði Hrafnhildur að skoða helv... páfagaukahúsið og láta taka mynd af okkur með nokkrum páfagaukum! Ég HATA páfagauka!!! En ég lét mig samt hafa það að halda á einum með berum höndum (ég hélt á kvikindi með fjaðrir MEÐ BERUM HÖNDUM!!! ÉG!!!! *hrollur*), sést líka skelfingarsvipurinn á mér á myndinni.....
Gamlárskvöld var líka mjög skemmtilegt. Mér tókst að vaka alveg til 5 um morguninn en það þýddi líka að ég var orðin svo þreytt þegar ég fór upp á herbergi (plús auðvitað áfengisneysla....) að ég fór í vitlaust hús!!! Fattaði það bara þegar ég ætlaði að fara að berja á dyrnar á því sem ég hélt að væri okkar herbergi , að ég var í bandvitlausu húsi *roðn*
En sem sagt, frábær ferð í alla staði! Takk fyrir mig Hrafnhildur, Óla og Addi!!
Ferðin í hnotskurn:Fimm tíma seinkun á vélinni í Keflavík (virkilega skemmtilegt)... “Aaaallrætí then...“... Gaurinn með hárið... Gaurinn með myndavélina... Hommalegi náunginn... Merengue kennslan í sundlaugargarðinum... Ocean World... Trukkaferðin... Pizza Hut... 30 gráðu hiti alla daga... Sex on the Beach (drykkurinn! Bara til að hafa það á hreinu...)... Warner TV... Krúttlegi barþjónninn sem var farin að vita hvað ég vildi... Kanadísku náungarnir á gamlárskvöld og crazy uncle... Karabíski veitingastaðurinn á hótelinu með besta kjúkling í heimi en það var svo kalt þar inni að maður varð að nota sérvéttuna sína sem teppi...
Nuna sit eg i internetstofunni a hotelinu okkar. Uti er mannskadahiti og brennandi sol!! Ferdin gekk bara nokkud vel fyrir utan 5 tima seinkun a fluginu, thannig ad vid vorum ekki komin a hotelid fyrr en um midnaetti, oll frekar threytt og sjuskud.
Dagarnir okkar hafa yfirleitt byrjad a solbadi a strondinni og i gaer forum vid Hrafnhildur og Ola til Puerto Plata. Thar roltum vid um og skodudum i budir.
Dagurinn i dag er svo dagurinn thar sem eg hef horfst i augu vid minn versta otta! Eg let taka myndir af mer baedi med apa OG pafagauk a oxlunum Og svo a eftir erum vid ad fara a kajak! Eg sjohraedda manneskjan!!!!
Einum gaurnum sem er i entertainment staffinu a hotelinu list alltof vel a mig og vill alltaf kyssa mig thegar hann ser mig Thess vegna hefur dagurinn i dag farid i ad reyna ad fordast hann! Eg er btw EKKI ad fara ad koma med einn innfaeddan heim, pabbi tharf ekki ad hafa ahyggjur af thvi
Jæja gott fólk, Dóminíska á fimmtudaginn!! Úff, ég held að ég sé að tapa mér úr stressi! En það gæti líka verið vegna þess að ég er ekki byrjuð að pakka niður..... Alltaf á síðustu stundu
Anyways, langaði bara að óska öllum gleðilegra jóla og hafið það öll sem allra best um jólin og áramótin Og ekki sakna mín allt of mikið.......
Adios mi amigos y Feliz Navidad.......
P.S. Farin að kaupa kassa af smokkum, það er víst allt morandi í hot brimbrettagaurum þarna úti.........
Jæja, þá er bara u.þ.b. hálfur mánuður í Dóminíska. Ekkert smá hvað tíminn hefur liðið hratt! Þegar ég byrjaði að telja var hálft ÁR í þetta. Allavega, þá er orðið það stutt í þetta að ég er að tapa mér úr spenningi/stressi. Ég er hætt að geta sofnað á kvöldin af því að af einhverri ástæðu þarf ég alltaf að fara að pæla í hlutunum þegar ég er að fara að sofa! Um daginn gat ég til dæmis ekki sofnað af því að ég fór að hugsa um það að ég ætti engar stuttbuxur fyrir ferðina Já ég veit ég er weird...... Anyway, búin að fara og kaupa mér smá gjaldeyri og svo skráðum við okkur í 2 mjööög spennandi skoðunarferðir í dag
Annars er bara voða lítið að gerast þessa dagana. Jólatörnin byrjuð í vinnunni og á bara eftir að aukast, þannig að það er bara vinna vinna vinna!
Jólahlaðborð Nóatúns í Smáralind var þann 24. nóvember og heppnaðist bara glymrandi vel Fór meira að segja næstum ekki neitt úr böndunum sem er frekar óvenjulegt þegar Nóatúnsstarfsmenn koma saman og drekka....
Jæja, ég er farin að horfa á DVD. Ný fíkn, Gray's Anatomy....
Later.....
05. desember 2007 klukkan 23:39
Sunna 1 athugasemd
Jæja, mánuður frá síðasta bloggi, held að það segi allt um hvað ég á spennandi líf
Allavega, þá eru bara 4 og hálf vika í Dóminíska Skrítið að hugsa um jólin og sjá sól og hvítar strendur fyrir sér um leið...... Ég (alltaf að leika túrista sko) keypti mér bók um Dóminíska Lýðveldið og er búin að fletta henni spjaldanna á milli, aðallega samt til að spotta út bestu barina og skemmtistaðina Stóð einmitt í bókinni að Playa Dorada ströndin sem við verðum á, sé alveg upplögð ef maður ætlar að byggja sandkastala! Það var einmitt mission þessarar ferðar, byggja sandkastala!!! Hehehe........
En næsta mál á dagskrá er auðvitað heimsreisan okkar Diljár. Við erum búnar að vera að skoða og skipuleggja og planið er að kaupa fyrsta flugmiðann strax eftir áramót. Við ætlum að byrja í Danmörku og færa okkur niður Evrópu. Frá Evrópu liggur svo leiðin til Ástralíu, Nýja-Sjálands og Fiji, þaðan til Hawaii og enda síðan á Bandaríkjunum (Los Angeles, San Fransisco, Las Vegas og New York). Maður er svona fyrst núna farin að gera sér grein fyrir að þetta er í alvöru, en ekki bara einhver fjarlægur draumur og þar af leiðandi erum við vinkonurnar orðnar óþolandi spenntar
Tilhugsunin um þessar ferðir er það sem kemur mér framúr rúminu þessa dagana. Ég er að mygla í þessari blessuðu vinnu minni. Nú er ég búin að vinna þarna í 5 ár (shiiiiit!!!) og auðvitað hefur oft verið gaman en núna er ég bara orðin eirðarlaus og langar að breyta til. Hugsa nú samt að ég reyni að þrauka til 15. maí en þá er ég búin að ákveða að hætta. Annars erum við fastafólkið að fara á ægilega fancy jólahlaðborð næsta laugardag Það verður nú bara skemmtilegt, en við erum nú líka öll svo skemmtileg sem erum að vinna þarna.... hehehe......
1. Hvað kallarðu mig? 2..Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég? 3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár? 4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug? 5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu? 6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug? 7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit? 8. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig? 9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni? 10. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna? 11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn? 12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig? 13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust? 14. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ? 15. Hversu vel telurðu þig þekkja mig? 16. Hvernig stráka fíla ég? 17. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma? 18. Hvað er mest einkennandi við mig? 19. Hvaða búðir elska ég að fara í?
Úff! Ég er orðin Sex and the City fíkill! Eftir vinnudaginn er ég farin að skjálfa og svitna af tilhlökkun að komast heim og kveikja á DVD-spilaranum!! Þetta er ekki eðlilegt. Ég er sem sagt á seríu 1-3 og Diljá er á seríu 3-6. Allt sem við tölum um þessa dagana er Sex and the City og vinnan. Við sem ætluðum ekki að vera sorglegar, en what the hell, við erum þá allavega sorglegar saman
Annað mál á dagskrá er heimsreisan okkar Diljár sem er fyrirhuguð í maí á næsta ári Við erum sem sagt að skipuleggja 6-7 mánaða ferð um Evrópu, Ástralíu, Nýja-Sjáland og Bandaríkin. Og SHIT hvað við erum farnar að hlakka til!! Ég elska að ferðast og ég er að vona að eftir svona langt ferðalag og eftir að hafa kynnst heiminum, finni ég rétta braut í lífinu og hvað ég vil verða.